Flosi H. Sigurðsson hrl.
- Lögmaður
- [email protected]
Flosi H. Sigurðsson er einn af eigendum OPUS lögmanna. Hann lauk MA-prófi frá lagadeild Háskóla Íslands 2010 og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi síðar sama ár. Flosi öðlaðist málflutningsréttindi fyrir Landsrétti árið 2018 og fyrir Hæstarétti 2021.
Sérsvið Flosa eru sifja- og erfðaréttur, refsiréttur, sveitarstjórnarréttur, skipulags- og byggingarlöggjöf, stjórnsýsluréttur og skiptastjórn þrota- og dánarbúa.
Flosi sinnir jafnframt allri almennri lögfræðiþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki, hann hefur mikla reynslu af málflutningi fyrir dómi og hefur sinnt lögfræðilegri skjalagerð á flestum sviðum lögfræðinnar.
Starfsferill
OPUS lögmenn, lögmaður frá árinu 2023
Lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga árið 2023
Sviðsstjóri hjá sveitarfélaginu Borgarbyggð árin 2020-2022
OPUS lögmenn, lögmaður frá árinu 2010-2020.
Háskólinn á Bifröst - Stundakennsla í málflutningi og skjalagerð frá 2022
Háskóli Íslands - Stundakennsla í Refsirétti 2013-2017.
Advocatus lögmannsþjónusta 2009-2010.
Veita Innheimtuþjónusta 2009.
Háskóli Íslands 2008-2009 - aðstoðarkennsla í almennri lögfræði og stjórn-skipunarrétti.
Menntun
Flosi lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi árið 2004. Hann útskrifaðist frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2010. Lokaritgerð hans var á sviði refsiréttar og fjallaði um mansal, nánar tiltekið 227. gr. a. hgl. Jafnframt hefur Flosi setið fjölda námskeiða á vegum Lögmannafélags Íslands til endurmenntunar á sínum sérsviðum.
Annað
Þátttakandi í málflutningskeppni Orator 2008.
Þátttakandi í norrænu málflutningskeppninni 2009.
Varamaður í nefnd um eftirlit með störfum lögreglu frá árinu 2018.
Stjórnarmaður í Menntaskóla Borgarfjarðar frá árinu 2019.