Starfsmenn

Bjarni Þór Sigurbjörnsson hdl.

Bjarni Þór Sigurbjörnsson hdl.

Bjarni Þór Sigurbjörnsson er einn eiganda OPUS lögmanna. Hann útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2014 og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2015.

Helstu sérsvið Bjarna Þórs eru kröfuréttur, skaðabótaréttur, sakamál, fasteignaréttur og fjölskylduréttur.

Nánar

Erlendur Þór Gunnarsson hrl.

Erlendur Þór Gunnarsson hrl.

Erlendur Þór Gunnarsson er einn eiganda OPUS lögmanna. Hann lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands árið 2003, öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi ári síðar og málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti árið 2010.

Sérsvið Erlends eru kröfuréttur, fasteignaréttur, félagaréttur og verktakaréttur.

Nánar

Felicia Mariana Pralea

Felicia Mariana Pralea

Felicia hóf störf sem lögmaður hjá OPUS lögmönnum í ágúst 2024. Hún útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2022 og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2024.

Nánar

Flosi H. Sigurðsson hrl.

Flosi H. Sigurðsson hrl.

Flosi H. Sigurðsson er einn af eigendum OPUS lögmanna. Hann lauk MA-prófi frá lagadeild Háskóla Íslands 2010 og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi síðar sama ár. Flosi öðlaðist málflutningsréttindi fyrir Landsrétti árið 2018 og fyrir Hæstarétti 2021.

Sérsvið Flosa eru sifja- og erfðaréttur, refsiréttur, sveitarstjórnarréttur, skipulags- og byggingarlöggjöf, stjórnsýsluréttur og skiptastjórn þrota- og dánarbúa.

Flosi sinnir jafnframt allri almennri lögfræðiþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki, hann hefur mikla reynslu af málflutningi fyrir dómi og hefur sinnt lögfræðilegri skjalagerð á flestum sviðum lögfræðinnar.

Nánar

Karol Walejko

Karol Walejko

Karol starfar sem fulltrúi hjá OPUS lögmönnum. Hann útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og er túlkur og löggiltur skjalaþýðandi úr pólsku á íslensku.

Nánar

Rebekka Ósk Gunnarsdóttir

Rebekka Ósk Gunnarsdóttir

Rebekka Ósk Gunnarsdóttir er einn eigenda OPUS lögmanna. Hún útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2020 og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2021.

Helstu sérsvið Rebekku eru skaðabótaréttur, fjölskyldu- og erfðaréttur, barnavernd og sakamál.

Nánar