Skip to content

Karítas Eik Sandholt

Karítas hóf störf sem lögmaður hjá OPUS lögmönnum í maí 2026. Hún útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2022 og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2026.

Starfsferill

Frá árinu 2021 hefur Karítas unnið fyrir Kópavogsbæ sem lögfræðingur á velferðarsviði og fyrir barnavernd Kópavogsbæjar. Þá hefur hún einnig sinnt störfum lögfræðings velferðarsviðs Mosfellsbæjar frá því í júní 2025 samhliða öðrum störfum. Karítas vann sem laganemi á lögmannsstofunni BBA//Fjeldco sumarið 2020. Þá var hún starfsnemi hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands á meðan á námi hennar stóð.

Menntun

Karítas stundaði nám í Menntaskólanum við Sund og fór í skiptinám á Ítalíu. Að því loknu lauk hún stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Kópavogi árið 2015. Hún hóf nám við lagadeild Háskólans í Reykjavík árið 2017 og lauk BA-gráðu í lögfræði með fyrstu einkunn árið 2020. Karítas lauk ML-gráðu frá sama skóla árið 2022 með fyrstu einkunn. Hún fór einnig í skiptinám við Stokkhólmsháskóla árið 2019.

Annað

Karítas sat í alþjóðnefnd Landssamtaka íslenskra stúdenta á meðan á laganámi hennar stóð. Að auki var hún sjálfboðaliði AFS skiptinemasamtaka. Karítas talar reiprennandi ítölsku og hefur túlkað á ítölsku. Hún talar einnig íslensku og ensku.