Þórunn Pálína Sigurborgardóttir

Starfsferill
Þórunn hefur starfað hjá OPUS lögmönnum frá 2026. Hún hefur víðtæka reynslu af lögfræðistörfum innan stjórnarráðsins sem og á einkamarkaði. Þórunn starfaði með námi hjá Logos lögmannsþjónustu, dómsmálaráðuneytinu og hjá lögmönnum við Austurvöll. Eftir útskrift frá lagadeild HÍ starfaði hún áfram hjá lögmönnum við Austurvöll þar sem hún annaðist aðallega höfundarréttarmál og samningagerð. Árin 2007-2012 starfaði Þórunn sem lögfræðingur hjá Persónuvernd. Þá hóf hún störf sem nefndarritari umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Árin 2015-2017 starfaði Þórunn hjá lögmannstofunni Lagarök en færði sig svo um set til velferðar-/heilbrigðisráðuneytisins sem lögfræðingur á skrifstofu heilbrigðisþjónustu. Þar annaðist Þórunn m.a. samningagerð, umsagnaskrif, og ríkislögmannsmál. Árin 2021-2025 starfaði hún sem lögfræðingur og ráðgjafi Íslandsdeildar Amnesty International þar sem starf hennar laut að mannréttindamálum, innan sem utanlands.
Menntun
Þórunn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1998. Hún útskrifaðist frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2005. Þórunn hefur einnig stundað nám í alþjóðlegum samskiptum í Háskóla Íslands og í sálfræði við Háskólann á Akureyri.
Annað
Þórunn stundaði tónlistarnám í Söngskólanum í Reykjavík og FÍH og hefur haldið fjölmarga tónleika, komið fram við ýmis tilefni, sungið inn á útgefið efni og teiknimyndir. Þá hefur hún einnig unnið sem leiðsögumaður og tekið að sér þýðingar og prófarkalestur. Þórunn talar ensku, sænsku og frönsku.